Lækjarskóli
Jafnréttisfræðsluverkefni Lækjarskóla fékk heitið
„Jafnréttislestin“. Markmið verkefnisins er að efla jafnréttisfræðslu og meðvitund nemenda um jafnrétti í skólanum og í samfélaginu almennt.
Stýrihópur innan skólans samanstendur af 8 nemendum úr 9. bekk ásamt námsráðgjafa. Hópurinn hittist reglulega og hefur ákveðið hvaða verkefni verða tekin fyrir í 9. bekk í vetur.
Nemendur horfa á bíómynd „með kynjagleraugum“ - Verkefnablað
Nemendur í níunda bekk skoðuðu bíómyndina: „Meet the fockers“ og fengu áður í hendur verkefni með spurningum sem þau áttu að hafa í huga á meðan þeir horfðu á myndina. Á eftir var nemendum svo skipt í hópa til að vinna með viðfangsefnið. Verkefnið mæltist vel fyrir. Margir nemendanna voru búnir að sjá myndina áður, en að þessu sinni leituðust þeir við skoða hana með kynjagleraugum.