Jafnréttisgátlisti Námsgagnastofnunar fyrir höfunda og starfsfólk
Aldís Yngvadóttir ritstjóri tók saman 30. maí 2008.
• Námsefni skal stuðla að mannréttindum og jafnrétti manna. Það skal vera laust við fordóma, t.d. um búsetu, fötlun, kyn, kynhneigð, kynþætti, stétt eða trúarbrögð. Leitast skal við að vinna gegn hvers konar viðhorfum sem hvetja til misréttis eða viðhalda því.
• Forðast ber að mismuna kynjum eða fjalla með einhliða hætti um hlutverk kynjanna. Leitast skal við eftir megni að ámóta fjöldi dæma sé tekinn af hvoru kyni, að áhugamálum beggja kynja sé gert jafnhátt undir höfði og að drengir og stúlkur séu ekki eingöngu sýnd í svokölluðum hefðbundnum hlutverkum.
Námsefni sem Námsgagnastofnun gefur út þar sem fjallað er um jafnrétti að hluta eða öllu leyti
Barnasáttmálinn (útg. 2008)
Um Barnasáttmála SÞ. Tvö veggspjöld og bæklingur. Í samstarfi við Barnaheill og umboðsmann barna.
Allir eiga rétt (útg. 2007)
Vefur með kennsluhugmyndum um mannréttindi, jafnrétti o.fl. Í samstarfi við UNICEF Ísland.
Borgaravitund og lýðræði (útg. 2005)
Vefur með kennsluhugmyndum. Í samstarfi við menntamálaráðuneytið.
Jafnréttishandbókin (útg. 2000)
Höf. Hafsteinn Karlsson og Stefanía Traustadóttir
Sagan af Sylvíu og Darra – leikin mynd (útg. 2000)
Ég er bara ég (útg. 2000) – ásamt kennsluleiðbeiningum á vef
Höf. Ádís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson
Kynlega klippt og skorið (útg. 2001)
Höf. Ásdís Olsen og Karl Ágúst Úlfsson
Leið þín um lífið – Siðfræði fyrir ungt fólk (útg. 2002)
Þýtt úr þýsku: Stefán Jónsson. Vinnublöð á vef (útg. 2008). Ísl. þýðing: Skúli Pálsson.
Þjóðfélagsfræði (útg. 2001)
Höf. Garðar Gíslason
Lífsgildi og ákvarðanir – kynfræðsla (útg. 1991)
Þýtt úr ensku
Margt er um að velja – náms-og starfsfræðsla á vef (útg. 2004)
Berglind Helga Sigurþórsdóttir og Helga Helgadóttir
Réttindi mín, 1.–3. hefti – um Barnasáttmála SÞ (útg. 1994)