Samantekt á jafnréttisfræðsluefni unnin af Öglu Maríu Jósepsdóttur.
Í þessari skýrslu er tekið saman
jafnréttisfræðsluefni sem til er hér á landi frá leikskóla og upp í framhaldsskóla. Ekki er um tæmandi lista að ræða heldur efni sem fannst við gagnaöflun í október og nóvember 2007.
Fyrst er tekið saman fræðilegt samhengi til þess að betur sé hægt að átta sig á mikilvægi þess að fræðsluefni eins og hér um ræðir sé nýtt í skólum landsins. Þá er fjallað um efnið eftir skólastigum, þ.e.a.s. hvaða efni tilheyrir hvaða stigi. Einnig eru nokkrar megin nálganir í efninu skoðaðar. Að lokum er svo að finna viðauka þar sem efninu er raðað eftir skólastigum og fylgir þar örlítil umfjöllun hverju efni fyrir sig.