Fólk heldur að við séum fleiri. Viðtalsrannsókn við íslenska karlleikskólakennara er Meistaraprófsritgerð Önnu Elísu Hreiðarsdóttur. Ritgerðina lagði Anna fram sem hluta
af námi sínu til M.Ed.-gráðu í menntunarfræðum með áherslu á stjórnun.
Anna Elísa Hreiðarsdóttir er leikskólakennari og lektor við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Hún hefur unnið að þróunarverkefnum og frumkvöðlastarfi innan leikskólans, bæði sem skólastjóri og deildarstjóri. Maki hennar er karlleikskólakennari og saman halda þau úti heimasíðu á slóðinni:
www.simnet.is/triangle