Þróun náms- og starfsráðgjafar í anda jafnréttis er meistararitgerð Ragnheiðar Bóasdóttur úr námi í náms- og starfsráðgjöf við félagsvísindadeild Háskóla Íslands 2005.
Ragnheiður er sérfræðingur í menntamálaráðuneytinu en starfaði áður sem náms- og starfsráðgjafi í Háskólanum á Bifröst og hefur einnig starfað sem slík í Fjölbrautaskólanum við Ármúla og Endurmenntun Háskóla Íslands.
Ragnheiður lauk diplomaprófi í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ 1992, meistaraprófi í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ 2005 og námi í hugrænni atferlisfræði frá Endurmenntun HÍ 2007. Hún situr í framkvæmdastjórn Kvenréttindafélags Íslands og faghópi þróunarverkefnisins Jarfnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum.