Áhrif náms- og starfsfræðslu á kynbundna starfshugsun er meistaraprófsritgerð Helgu Helgadóttur úr námi í náms- og starfsráðgjöf í félagsvísindadeild Háskóla Íslands 2006.
Hugmyndin að verkefninu kviknaði í kjölfar lokaverkefnis sem höfundur vann, ásamt Berglindi Helgu Sigurþórsdóttur, í námi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands árið 2004. Í því verkefni var náms- og starfsfræðsluefnið
Margt er um að velja tekið til endurskoðunar og sett í nýjan búning inn á vef Námsgagnastofnunar. Kafla um kynbundna starfshugsun var bætt við efnið og lék Helgu forvitni á að vita hvort sá kafli nýttist sem skyldi.