Skóladrengir og karlmennska er lokaritgerð Joanna Leokadia Wójtowicz og Sigríðar Hreinsdóttur en þær luku B.ed námi frá Háskólanum á Akureyri vorið 2005. Leiðbeinandi var Ingólfur Ásgeir Jóhannesson prófessor við Háskólann á Akureyri.
Joanna Leokadia Wójtowicz sem er pólsk að uppruna flutti aftur til Póllands þegar hún hafði lokið B.ed námi frá Háskólanum á Akureyri og lauk BS gráðu í stærðfræði og eðlisfræði í sínu heimalandi. Joanna er núna í mastersnámi í stærð- og eðlisfræði.
Sigríður Hreinsdóttir hefur starfað sem kennari við Glerárskóla á Akureyri síðan hún útskrifaðist sem kennari frá Háskólanum á Akureyri vorið 2005.