Úr viðjum vanans: Hindranir á vegi ungra karla á leið í hefðbundin kvennastörf er Meistaraprófsritgerð Steinunnar Hörpu Jónsdóttur. Ritgerðina lagði Steinunn fram sem hluta af námi sínu til M.A.- gráðu í náms- og starfsráðgjöf við félagsvísindadeild Háskóla Íslands.
Steinunn er með BA-gráðu í félags- og atvinnulífsfræði frá HÍ 1996 og MA-gráðu í náms- og starfsráðgjöf frá HÍ 2006. Undanfarin átta ár hefur hún unnið ýmis störf í grunn- og leikskólum, þar af sem náms- og starfsráðgjafi síðastliðin tvö ár.
Ástæða þess að Steinunn valdi þetta efni er að hún hefur lengi haft áhuga á kynjafræði og tengslum kynferðis og verðgildis starfa. Steinunn hefur áralanga reynslu af umönnunarstörfum bæði í leik- og grunnskólum og þekkir því vel til á vinnustöðum þar sem nær eingöngu konur starfa. Þessi reynsla hennar hvatti hana til að skoða hvaða skýringar geta legið að baki lágum launum fyrir umönnunarstörf og kynjaskiptingu vinnumarkaðarins. Náms- og starfsráðgjafar hafa ýmsar leiðir til að hafa áhrif á náms- og starfsval og hugmyndir um nám og störf og fjallar Steinunn um það í ritgerðinni.