Margrét Pála Ólafsdóttir
margretpala[at]hjalli.is Margrét Pála Ólafsdóttir hefur um árabil flutt fyrirlestra um ýmsa þætti uppeldisstarfs. Margrét Pála er höfundur Hjallastefnunnar þar sem unnið er að jafnrétti kynjanna með kynjaskiptu skólastarfi. Í fyrirlestrum sínum fjallar Margrét Pála um ástæður kynjaskiptingarinnar og segir frá ólíkum áherslum í stúlkna- og drengjauppeldi Hjallastefnunnar. Margrét Pála er leikskólakennari að mennt en hún útskrifaðist frá Fósturskóla Íslands árið 1981, lauk framhaldsnámi í stjórnun frá sama skóla árið 1996 og árið 2000 lauk hún meistaragráðu í uppeldis og menntafræði frá Kennaraháskóla Íslands. Margrét Pála stofnaði árið 2000 fyrirtækið Hjallastefnuna ehf. sem rekur nú 12 leik- og grunnskóla á grunni þjónustusamninga við sveitarfélög. Margrét Pála hlaut árið 1997 Jafnréttisverðlaun Jafnréttisráðs og ráðherra jafnréttismála fyrir Hjallastefnunna og hefur síðan hlotið fjölda viðurkenninga fyrir frumkvöðlastarf sitt í skólamálum.