Sóley Tómasdóttir
soley.tomasdottir[at]reykjavik.is
Sóley Tómasdóttir býður upp á fyrirlestra fyrir starfsfólk í uppeldis- og menntastofnunum um mikilvægi kynjaðs uppeldis. Í fyrirlestrunum útskýrir hún kynjað kerfi samfélagsins, hvernig það horfir við börnum og hvaða áhrif það getur haft, enda ljóst að viðfangsefni, áhugamál, menntun og störf í samfélaginu eru afar kynbundin. Í fyrirlestrunum dregur Sóley fram þann raunveruleika sem börn alast upp við, hvaða áhrif hann hefur og hvernig uppalendur geta í sínu starfi brugðist við, eflt sjálfstraust barnanna og gagnrýna hugsun og þannig gert þau reiðubúnari til að sporna gegn stöðluðum ímyndum kynjanna. Fyrirlesturinn tekur u.þ.b. 90 mínútur með umræðum.
Sóley er með BA-próf í uppeldis- og menntunarfræðum og hef verið virk í jafnréttisbaráttunni frá því hún man eftir sér. Hún starfa nú sem varaborgarfulltrúi, en var áður deildarstýra barnastarfs í frístundamiðstöðinni Miðbergi á vegum Íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar.