Aðdragandi að jafnréttisstefnu leikskóla Seltjarnarnesbæjar
Stjórnendur og starfsfólk leikskólanna ákvað á s.l. ári að skoða jafnréttismál í starfi leikskólanna með það að markmiði að tryggja fullt jafnrétti kynjanna þ.e.barna, starfsmanna og foreldra. Greina skyldi hvort að viðmót og samskipti: a) við börnin, b) barnanna innbyrðis, c) starfsfólk innbyrðis og d) við foreldra, væri byggt á jafnréttisgrunni.