Getur strákur verið Rauðhetta?
Kynjajafnréttisverkefni leikskólans Smárahvamms. Höfundur er Maríanna G. Einarsdóttir. Ritgerðin var Dip. Ed. verkefni hennar við Háskólann á Akureyri.
Veturinn 2008 til 2009 tóku kennarar leikskólans Smárahvamms þátt í verkefninu Jafnrétti í skólum, það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Tilgangur verkefnisins var að efla jafnréttisfræðslu og að samþætta kynjasjónarmið í kennslu.
Maríanna lauk leikskólakennaraprófi frá Fósturskóla Íslands 1978 og námi í fræðslustjórnun frá framhaldsdeild Fósturskóla Íslands 1992. Hún stundar meistaranám við Hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri með áherslu á stjórnun menntastofnanna. Maríanna hefur unnið sem leikskólakennari og leikskólastjóri hjá leikskólum Kópavogs frá 1978.