Barnabókin,
Þegar Friðrik var Fríða / Þegar Rósa var Ragnar.
Höfundar: Louise Windfeldt og Katrine Clante.
Þýðandi: Þórlaug Baldvinsdóttir.
Þegar Friðrik var Fríða
Þegar Rósa var Ragnar
KennsluleiðbeiningarDen dag dag Frederik var Frida Den dag da Rikke var Rasmus Barnabókinni Þegar Friðrik var Fríða / Þegar Rósa var Ragnar sem heitir á frummálinu Den dag da Frederik var Frida / Den dag da Rikke var Rasmus er ætlað að skapa umræður með ungum börnum um kynhlutverk og jafnrétti.
Bókin samanstendur af tveimur sögum, sögunni um Friðrik og sögunni um Rósu sem vakna morgun einn sem gagnstætt kyn. Við fylgjumst með þeim einn dag, bæði heima og í leikskólanum, og fáum að upplifa væntingar og kröfur sem gerðar eru til þeirra út frá kyni. Bókin endurspeglar veruleikann eins og hann er, það er að stelpur og strákar fá mismunandi skilaboð, frá öðrum börnum og frá fullorðnum.
Leikskólinn Lundarsel á Akureyri tók þátt í þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum skólaárið 2008–2009 og þar var bókin notuð í heimspekivinnu með leikskólabörnum. Starfsfólk Lundarsels vann kennsluleiðbeiningar með bókinni sem nálgast má hér á síðunni.
Lítið er til af góðu og aðgengilegu jafnréttisfræðsluefni fyrir börn á leikskólaaldri og börn á yngsta stigi í grunnskóla. Þeir sem standa að þróunarverkefninu Jafnréttisfræðsla í leik- og grunnskólum vilja bæta úr þessu og telja að bókin um Rósu og Friðrik geti nýst vel í jafnréttisstarfi með yngstu börnunum. Mikilvægt er að bókin sé aðgengileg öllum þeim sem vilja efla jafnréttisfræðslu, því hefur Jafnréttisstofa og félags- og tryggingamálaráðuneytið gefið öllum leikskólum og grunnskólum landsins eintak af bókinni.